|
Talning
Eftir 15 daga
Njarðvíkur mót 12.feb
Talning
Eftir 158 daga
N1-mót 4.7.júlí
Talning
Eftir 195 daga
Olísmót 10-12.ágúst
|
27.01.2012 21:45:20 / lassi
FA Cup Liverpool v Man United laugardaginn 28.janúar Leikurinn hefst 12:45, þið megið mæta 12:25 Leikurinn verður sýndur í íþróttahúsinu við sunnubraut á efri hæð. Fjölskyldumeðlimir velkomnir og það er í lagi að koma með snakk og gos Ég vill endilega sjá menn í treyjum frá sínum liðum. Áfram Liverpool
»
17.01.2012 18:28:33 / lassi
Það verður fótboltamót á Akranesi 4.mars og ég er búinn að skrá okkur.
ÍA vill líka fá okkur í heimsókn til að spila æfingaleiki 5.febrúar sem mér líst mjög vel á en ég vil kanna áhuga ykkar fyrir því. Þess vegna bið ég ykkur um að skrifa við þessa færslu hvort þið munið komast þessa dagsetningu og hvort þið gætuð hugsað ykkar að keyra. Við verðum að notast við einkabíla og þeir sem fá far verða borga bílstjórum 1000kr.
»
09.01.2012 17:15:56 / lassi
Fótboltamótin framundan
12.febrúar Njarðvíkurmót í Reykjaneshöllinni, þetta er sun.
Faxaflóamót sem hefst í mars og lýkur í maí
Íslandsmót sem stendur yfir allt sumarið, lítið spilað í júlí.
N1-mót.4-7.júlí, þetta er mið.fim.föst.lau.
Olísmótið á Selfossi 10-12.ágúst, þetta er föst.lau.sun
Ég mun senda öllum foreldrum e-mail með þessum dagsetningum.
»
27.12.2011 16:45:02 / lassi
Fimmtudags-fótbolti 29.des 2011 kl.10:00-12:00 Ætlum við að spila fótbolta í síðasta sinn á árinu. Endilega að skrifa ykkur við þessa færslu svo ég viti hverjir hafa séð fréttina. Gott að láta sína félaga vita af þessu, vonandi sjáumst við allir á fimmtudagsmorgun. Kv. Lassi
»
15.12.2011 20:09:55 / lassi
Jólafrí
Frá 19.desember til 4.janúar Næsta mánudag verður síðasta æfingin, þá verður foreldrabolti og hvetjum við alla pabba og mömmur til að reima á sig takkaskóna og taka þátt í léttum leik með okkur frá 16:00-17:00. Strákarnir mega koma með drykk og snarl með sér, samt ekki sælgæti. Vonandi geta sem flestir séð sér fært um að mæta til að eiga góða stund.
»
06.12.2011 12:53:35 / lassi
Hugmyndakassinn
Nú vil ég fá ykkar hugmyndir um það hvernig við getum skemmt okkur saman. Allar hugmyndir eru velkomnar en það geta hins vegar ekki allar orðið að veruleika. Við munum reyna að framkvæma þeir hugmyndir sem við teljum að bæti tengslin milli okkar allra, því það er mikilvægt að andinn sé góður í hópnum.
Þið verðið að skrifa athugasemdir (ykkar hugmyndir) við þessa frétt, það verður engin dálkur hér vinstra megin í aðalvalmynd eins og ég hafði sagt á æfingu vegna þess að það er ekki hægt að skrifa athugasemdir við þá dálka.
»
01.12.2011 22:22:18 / lassi
Keflavíkur-mótið sem var haldið um síðustu helgi tókst ágætlega. Ég var þokkalega ánægður með árangurinn, það var margt jákvætt en ýmislegt sem við getum gert betur. Enska deildin Keflavík lenti í 1.sæti í sínum riðli, tapaði úrslitaleik og endaði í 2.sæti í mótinu. Keflavík City lenti í 2.sæti í sínum riðli,tapaði leik um bronsið og endaði í 4.sæti Íslenska deildin Keflavík lenti í 1-2.sæti í riðlinum og unnu leik um bronsið og enduðu í 3.sæti Spænska deildin Keflavík lenti í 2.sæti í sínum riðli en tapaði leik um 3.sætið og endaði því í 4.sæti Keflavík city lenti í 1-2.sæti í sínum riðli en gerði jafntefli í úrslitaleik og endaði í 2.sæti vegna markamismunar. Þýska deildin Keflavík lentu í 4.sæti í sínum riðli og enduðu í 7.sæti Keflavík City lentu í 3.sæti í sínum riðli og enduðu í 5.sæti
Við tókum tvö silfur og brons sem er ágætt. Við verðum hins vegar að vera grimmari í úrslitaleikjunum. Jákvæða hliðin á þessu er, að þetta fer allt í reynslubankann.
Ég ætla framvegis að velja lið mótsins og ræða aðeins um liðið. Að þessu sinni var það Keflavík City í spænsku deildinni. Þeir töpuðu ekki leik á mótinu og voru virkilega óheppnir að vinna ekki úrslitaleikinn. Sá leikur fór 0-0 á móti Víking Ólafsvík og vorum við stanslaust í sókn fyrri hluta leiksins. Við óðum í marktækifærum en því miður tókst okkur ekki að koma boltanum yfir línuna. Við verðum að gera betur í næsta móti og klára þau færi sem við fáum. Annars spilaði liðið flottann fótbolta, góð vörn, gott samspil og hraði. Það var kraftur í strákunum sem hafa vaxið mikið. Þessir drengir hafa upplifað mikið mótlæti, sérstaklega á síðasta ári en þeir virðast hafa styrkst við það, sem er frábært. Það er svo mikilvægt að læra af mistökum sínum og gefast ekki upp þótt á móti blási. Stundum verður maður að upplifa erfiða tíma til þess að öðlast styrk og gleði.
Keflavík City var lið mótsins að þessu sinni. Bartoz fyrirliði, Einar Sæþór, Bergþór, Róbert Andri, Gunnólfur, Björgvin, Andri og Helgi í markinu. Til hamingju drengir með frábært mót.
»
25.11.2011 20:43:02 / lassi
Þeir sem spila í þýsku og spænsku deildinni eiga að mæta kl.09:15
Þeir sem spila í íslensku og ensku deildinni eiga að mæta kl.12:15
Mótsgjald er 1500kr.
Muna að það skiptir máli að borða vel og fara snemma að sofa Gangi ykkur vel á morgun Áfram Keflavík
»
24.11.2011 23:53:35 / gunj
Þeir sem eru í SPÆNSKU og ÞÝSKU deildinni spila kl. 10:00 - 13:03. Leikjaplan í SPÆNSKU og ÞÝSKU má finna HÉR. Þeir sem eru í ENSKU og ÍSLENSKU deildinni spila kl. 13:10 - 16:11. Leikjaplan í ENSKU og ÍSLENSKU má finna HÉR.
Kv. foreldraráð
»
24.11.2011 10:18:48 / lassi
Sæl öll. Eins og þið vitið verður mót næsta laugardag. Þetta er mjög mikilvæg fjáröflun fyrir alla og því verða allir að hjálpast að. Öll viljum við vera félaginu til sóma.
Foreldraráð vill biðja hvern dreng að mæta með bakkelsi eins og segir á listanum hér fyrir neðan.
Bakkelsið skal koma á smá fund sem haldinn verður föstudaginn 25.nóv. kl.20:30 á 2.hæð í Reykjaneshöll. Þar munu foreldrar afhenta bakkelsi ásamt því að skrá sig á sjoppuvakt (það felst í afgreiðslu í sjoppu, afhending pítsu/verðlauna, tiltekt o.þ.h.)
Athugið að þeir sem ekki taka þátt í bakkelsi og sjoppuafgreiðslu fá ekki hlut úr mótinu, eingöngu þeir sem leggja sitt af mörkum.
Ef einhver er ekki á listanum hér fyrir neðan, endilega látið vita og við bætum ykkar dreng við.
Pönnukökur Eyþór Atli, Unnar, Ísak, Stefán P, Ingimundur, Guðmundur Freyr, Arnór Sveins, Einar Muffins Arnar Smári, Cezary, Sigurður Jón, Jón Kristján, Edon, Sindri, Hreggviður, Samúel, Eyþór Vilmundur Skúffukaka Stefán Arnar, Ingi þór, Kalli, Axel Fannar, Harun, Sigurður Ingi, Egill Darri Flatkökur m/hangikjöti (2 pakkar af flatkökum) Gunnar Norris, Viktor Abdullah, Snorri, Róbert Dalmar, Alexander Aron, Birkir,Bjartur, Guðmundur Marínó, Emil, Snævar Pizzusnúðar/kanilsnúðar Gunnólfur, Róbert Andri, Bartoz, Björgvin, Bergþór, Einar Sæþór, Andri, Ólafur Þór, Breki, Hlynur, Snorri Kleinur Ingiþór, Guðni Ívar, Óli Þór, Jakub, Aron, Hjölli, Elvar, Aðalsteinn, Bragi, Arnór Máni
Ekki er verra ef þið kvittið í athugasemdir eftir lestur þessarar færslu. Endilega látið fréttirnar berast. Áfram Keflavík. Kv.Foreldraráð
»
21.11.2011 01:02:15 / lassi
Það verður fótboltamót laugardaginn 26.nóvember fyrir 5.flokk. Við verðum með 7.lið á mótinu þannig að allir fá að spila nóg. 2 lið í ensku deildinni 1. lið í íslensku deildinni 2. lið í spænsku deildinni 2. lið í þýsku deildinni Reglurnar eru þannig að það spila 5.útileikmenn og 1. í marki Það verða 8.leikmenn í hverju liði hjá okkur. Leiktíminn verður mjög líklega 1x16 min. Það er hægt að skoða liðsskipan hér vinstra megin í aðalvalmyndinni, þar er dálkur sem ég skírði Nettómót 2011.
»
17.11.2011 22:53:19 / lassi
PUMADAGUR Í K-SPORT Sunnudaginn 20.nóvemer verður puma-afsláttardagur í K-sport frá 13:00-18:00
Það verður 20-30% afsláttur af öllum pumavörum, nema Keflavíkur-búningnum Tilvalið er að nýta sér þennan afsláttardag fyrir kaup á t.d. Keflavíkurgöllunum Fullt af flottum vörum fyrir alla fjölskylduna
»
15.11.2011 18:22:27 / lassi
Kæru mömmur Ég er að leita eftir konu sem getur tekið að sér að sjá um búningatöskuna, hún þarf að vera skipulögð og þrifin. Þetta er kannski ekki skemmtilegasta starfið í heiminum en það er mjög mikilvægt að það sé haldið vel utan um búningana. Sú sem tekur þetta að sér þarf ekki endilega að vera allt árið. Kv.Einar Lars
»
13.11.2011 20:00:34 / lassi
Strákarnir sigruðu Keflavíkur mótið í 4.flokk
Þeir gáfust ekki upp og spiluðu flottann fótbolta. Þetta var algjörlega frábært og ég er þvílíkt stoltur af þeim Til hamingju með sigurinn
»
11.11.2011 22:14:54 / lassi
4.flokks mót Okkur í 5.flokk hefur verið boðið að taka þátt í 4.flokks mótinu um helgina sökum þess að það vantaði lið. Við munum spila sem Keflavík 4 á sunnudeginum 13.nóvember. Þetta setti mig í frekar erfiða stöðu, því það geta ekki allir fengið að keppa. Við verðum með tvo menn í hverri stöðu. Ég hef því ákveðið að velja þessa drengi til að keppa fyrir hönd 5.flokks í þetta skipti.
Eyþór Vilmundur, Arnar Smári, Axel Fannar, Einar Örn, Samúel, Cezary, Sindri, Ísak, Stefán Péturs, Guðmundur Freyr, Eyþór Atli, Bartoz, Egill Darri, Sigurður Jón, Hreggviður, Harun, Ingimundur, Jón Kristján, Edon, Arnór Sveins, Sigurður Ingi Ísak er fyrirliði Axel Fannar varafyrirliði
Það verður spilað þrjá leiki á stórum velli, 11.manna bolti og leiktíminn 35.min Mæting kl.12:00 fyrsti leikur 13:07 sunnudaginn 13.nóv
»
Síður: 1 2 3 ... 66
|
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimsóknir
Í dag: 61 Alls: 332322
Síðast inni
Ég var síðast inni í gær
|